Saga Kakala – GAIA by Gulla Jónsdóttir
Saga Kakala – GAIA by Gulla Jónsdóttir
15/03/2017 15:15 0

Rigga sá um kynningu á silkislæðulínu Saga Kakala sem kynnt var á HönnunarMars 2016. Línan er eftir Gullu Jónsdóttur, arkitekt í Los Angeles og byggir á heimalandi hennar, Íslandi.

Rigga sá um uppsetningu sýningarinnar sem haldin í Ásmundarsal ásamt opnunarhófi sem haldið var á óopnuðu SAND hóteli við Laugaveg.

Einnig lét Rigga útbúa myndband um línuna og hélt utan um tískumyndatöku hennar.