Stórsýningin Verk og vit var haldin í þriðja sinn dagana 3.-6. mars 2016 í laugardalshöll. Rigga var ráðin til að halda utan um framkvæmd sýningarinnar, vinna verkefna-, fjárhags-, og birtingaráætlun ásamt því að halda kynningar fyrir væntanlega sýnendur.
Verkefnið stóð yfir frá haustmánuðum 2015 og til miðs mars 2016. Aðsóknarmet var slegið á sýningunni en um 23.000 gestir sóttu hana heim. Verk og vit er ein stærsta fagsýning sinnar tegundar á Íslandi.