Markþjálfunardagurinn 2017
Markþjálfunardagurinn 2017
15/02/2017 13:33 0

Það er sérlega ánægjulegt þegar við fáum tækifæri til að vinna aftur og aftur fyrir viðskiptavini okkar. Markþjálfunardagurinn er einn slikur og hélt Rigga utan um hann í þriðja sinn í ár.

Verkefnið var að taka viðtöl við fyrirlesarana, vera stjórn félagsins innan handar við framkvæmdina, vinna almannatengslaáætlun fyrir daginn,  benda fjölmiðlafólki á áhugaverða viðmælendur og vinna með grafískum hönnuði að útliti og skilaboðum Markþjálfunardagsins.

Markþjálfunardagurinn er alltaf fullur af hvetjandi fyrirlestrum og áhugaverðum erindum.