Aðventutónleikar Söngfjelagsins 2016
Aðventutónleikar Söngfjelagsins 2016
07/12/2016 14:10 0

Tvennir aðventutóleikar Söngfjelagsins voru haldnir 6. desember í Langholtskirkju.  Rigga sá um kynningarmál og markaðssamskipti tónleikanna, gerði stutt kynningarmyndbönd, skrifaði fréttir og pósta m.a. á Facebooksíðu Söngfjelagsins.

Verkefnið hófst í október og vann Rigga þétt með stjórn Söngfjelagsins þar til seinasta nótan var sungin á seinni tónleikunum.

Vel tókst til með kynningarmálin og voru viðtöl við Söngfjelaga í öllum helstu fjölmiðlum landsins.

Það má til gamans geta að aðsóknarmet var á tónleikana, uppselt var á þá fyrri en örfá sæti voru laus á þeim seinni.