Formlegra
Formlegra
Verk og vit 2016

Verk og vit 2016

Verkefni í formlegri kantinum eins og ráðstefnur, kaupstefnur og sýningar geta verið toppurinn á tilverunni hvað skemmtileg tækifæri í markaðssamskiptum varðar.   Rigga hefur einstaka ánægju af að rigga slíkum viðburðum upp og vinna innan rammans. Áralöng reynsla, þekking og gott skipulag skilar verkefnum á tíma og innan áætlunar.

Því er svo við að bæta að hugarflugsfundir, greiningar og hverskyns áætlanir hljóma sem tónlist í eyrum Riggu sem vinnur þétt við hlið þér til að sem bestur árangur náist.

Aðferðarfræði Riggu er tilkomin úr spuna leikhússins og nýsköpun sem er góð blanda af listrænni nálgun og viðskiptafræði.

 

Rigga riggar’essu!