Tvennir aðventutóleikar Söngfjelagsins voru haldnir 6. desember í Langholtskirkju. Rigga sá um kynningarmál og markaðssamskipti tónleikanna, gerði stutt kynningarmyndbönd, skrifaði fréttir og pósta m.a. á Facebooksíðu Söngfjelagsins.
Verkefnið hófst í október og vann Rigga þétt með stjórn Söngfjelagsins þar til seinasta nótan var sungin á seinni tónleikunum.
Vel tókst til með kynningarmálin og voru viðtöl við Söngfjelaga í öllum helstu fjölmiðlum landsins.
Það má til gamans geta að aðsóknarmet var á tónleikana, uppselt var á þá fyrri en örfá sæti voru laus á þeim seinni.